Veður á Íslandi

Veðrið Íslenskt veðurapp fyrir Ísland

Veðrið er íslenskt veðurapp sem sýnir lifandi mælingar, færð, veðurspá og viðvaranir fyrir ferðalög um landið.

Appið er fyrir iPhone og Android, fæst í App Store og Google Play og má nota á íslensku, ensku, þýsku, frönsku og pólsku.

Við berum ekki ábyrgð á réttleika gagna. Staðfestið alltaf mikilvægar ferðaupplýsingar í síma 1777.

Veðrið appið með lifandi veðurupplýsingum frá hundruðum stöðva

Appið

Skiltin fyrst.

Veðrið reynir ekki að vera allt fyrir alla. Það sýnir stöðvarnar, vindinn, vindhviður, hitann og það sem skiptir máli þegar fólk er að fara um landið.

  • Líkir eftir veðurskiltum Vegagerðarinnar.
  • Sýnir beinar mælingar, vegaupplýsingar og staðbundna veðurspá aðskilið.
  • Býður valfrjálsar tilkynningar fyrir uppáhaldsstöðvar.
  • Geymir síðustu gagnlegu gögn og merkir skýrt þegar þau eru eldri eða vistuð án nettengingar.
  • Byggir á opnum gögnum og þjónustum sem allir mega nota.

Eiginleikar appsins

Mælingin fyrst. Meira samhengi þegar þú þarft.

Veðrið heldur beinum mælingum, spá og viðvörunum aðskildum svo alltaf sé skýrt hvað er að gerast núna og hvað gæti gerst næst.

Veðurspá

Veðurspá á stöðvarsíðum kemur frá yr.no / MET Norway fyrir hnit stöðvarinnar. Hún sýnir næstu klukkustundir, úrkomu, vind, hviður, raka og UV þegar gögnin eru tiltæk, auk dagayfirlita og hita- og úrkomulínurits.

Spáin styður við mælingar en er ekki öruggar upplýsingar um færð eða veður.

Tilkynningar

Veldu uppáhaldsstöðvar og fáðu valfrjálsar tilkynningar um vind og hviður, lokanir og virkar viðvaranir eða hvort það sé Bongó! Þú velur viðmið, daga og tíma og getur prófað hljóðið og séð skráningarstöðu símans.

Stillingar

Veldu fjölda nálægra stöðva, röðun, hvort halda eigi skjánum vakandi, tilkynningaviðmið, leyfða daga og tíma og persónuverndarvalkosti auglýsinga þegar þeir eru í boði.

Tungumál

Íslenska er sjálfgefin. Við fyrstu ræsingu og síðar í Stillingum má velja tungumál appsins.

Íslenska English Deutsch Français Polski

Líka án nets

Veðrið geymir síðustu gagnlegu stöðvar, mælingar, viðvaranir og nýlega skoðaðar spár. Vistuð gögn haldast sýnileg og eru merkt sem eldri eða án nettengingar þar til ný gögn nást.

Veðurapp fyrir Ísland

Hvaða veðurapp hentar fyrir Ísland?

Veðrið er íslenskt veðurapp fyrir iPhone og Android. Það sameinar veður á Íslandi, lifandi mælingar, færð, staðbundna spá og viðvaranir á einum stað.

Appið

Sama útlit, sami taktur.

Við höldum útlitinu óbreyttu ár eftir ár en tækninni uppfærðri: dökkur grunnur, blá skilti, skýrar mælingar og ekkert óþarfa skraut.

Veðrið appið með lifandi veðurskiltum frá hundruðum stöðva
Rauntími
Lokaður vegur sýndur skýrt í Veðrið appinu
Lokað
Umsögn atvinnubílstjóra um Veðrið appið
Umsagnir
Seifur kort í Veðrið appinu með myndrænum upplýsingum um vinda
Seifur
Kort yfir allar stöðvar í Veðrið appinu
Kort
Stöðvar nærri þér og fjær í Veðrið appinu
Stöðvar
Staðbundin veðurspá fyrir veðurstöð í Veðrið appinu
Veðurspá
Stillingar fyrir valfrjálsar tilkynningar í Veðrið appinu
Tilkynningar

Opið API

Byggðu þínar lausnir.

Allir sem vilja byggja lausnir á gögnunum geta gert það. API-ið er frjálst og ókeypis í notkun, rétt eins og gögnin sem við fengum frjáls og ókeypis frá Vegagerðinni og Veðurstofunni.

Ef þú vilt prófa, tengja, sækja stöðvar eða byggja eigin lausn, byrjaðu á API-skjöluninni á api.vedrid.is/docs.

GET https://api.vedrid.is/v2/stations
GET https://api.vedrid.is/v2/seifur
GET https://api.vedrid.is/v2/alerts

Vefgræja

Settu skiltið á eigin vef.

Það má fella Veðrið inn á aðra vefi sem lifandi blátt skilti. Veldu eina til fimm veðurstöðvar og vefgræjan sækir nýjustu mælingar.

Þetta er hugsað fyrir ferðaþjónustur, sveitarfélög, fréttasíður og aðra sem vilja sýna veðrið á sínum vef án þess að byggja allt frá grunni.

<script async
  src="https://cdn.vedrid.is/assets/vedrid-widget-loader.js?v=2.1.2"
  data-stations="31572,1159"
  data-width="100%"
  data-height="230"
  data-sign-width="430"></script>

Gögn og ábyrgð

Opin, en ekki opinber ferðaráðgjöf.

Beinar mælingar og vegaupplýsingar í Veðrið byggja á gögnum frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og tengdum heimastöðvum. Veðurspá á stöðvarsíðum kemur frá yr.no / MET Norway og er sýnd aðskilin frá mælingum.

Hafa samband

Sendu fyrirspurn.

Notaðu formið hér að neðan fyrir spurningar um áskriftir, auglýsingar, aðstoð, API, vefgræjur eða annað sem tengist veðrinu.

Einnig má senda beint á [email protected].

Veðurguðirnir

Unnið í frístundum.

Veðurguðirnir eru Einar Bragi, Guðmundur og Ólafur Helgi.

Við gerum þetta af því að okkur finnst gögnin gagnleg, skiltin falleg og ferðalagið um Ísland eiga skilið betri tæknilega upplifun.